Velkomin til Elmu Studio
Við erum eigendur Elmu Studio, hjónin Íris Sverrisdóttir og Óttar Steinn Magnússon. Við erum búsett á Egilsstöðum með börnunum okkar þremur.
Íris er Grindvíkingur í húð og hár, en eftir að Óttar náði að draga hana austur þá kviknaði einhver neisti hjá henni hvað varðar náttúru, umhverfi og hvað nánasta umhverfi getur haft mikil áhrif á líðan.
Óttar Steinn er á heimavelli, fæddur og uppalinn á Egilsstöðum. Menntaður húsasmiður og byggingafræðingur, með mikinn áhuga á húsasmíði, húsgagnasmíðum og öllu öðru sem viðkemur mannvirkjum.
Gildin okkar
Slow living
Gæða vörur sem endast
Góð persónuleg þjónusta
Eftir að hafa klárað tvö fokheld hús, eitt í Grindavík og annað á Egilsstöðum, auk þess að hafa aðstoðað vini og vandamenn við að breyta og lagfæra sín heimili, þá fundum við að þetta var eitthvað sem við vildum starfa í kringum. Í miðju fæðingarorlofi ákvað Íris að hefja nám í innanhússstílista. Hún sá fljótt að ef hún ætlaði að starfa við það á Austurlandi þá væri vöntun á vörum og þjónustu á svæðinu. Fór þá hugurinn að reika og varð niðurstaðan að opna verslun með vörum sem uppfylla hennar kröfur um gæði, fagurfræði og umhverfissjónarmið. Góð umhverfissjónarmið er þegar lágmarks eiturefni eru notuð við gerð vörunnar, bæði fyrir þig og náttúruna, efni er endurunnið, vottaðar vörur og góðar aðstæður og laun fyrir starfsfólk sem vinnur við gerð vörunnar. Á ensku kallast þetta Sustainable fyrirtæki. Eftir að hafa farið í mikla rannsóknarvinnu og valið fyrirtæki vandlega sem við vildum hafa í okkar röðum var Elma Studio orðin að veruleika.
Nafnið Elma studio kemur frá því að Íris
var alltaf hörð á því að ef hún eignaðist dóttur, myndi hún heita Elma.
Þegar dóttirin fæddist þá fékk hún allt annað nafn og því lá beinast við
að nota það yfir verslunina.
Studio er svo tilkomið af því að ekki
er einungis um verslun að ræða, hægt er að setjast niður með Írisi og fá
innanhússráðgjöf í versluninni. Útbúa "lifandi stemmingsspjald", þar
sem allskonar vörur úr versluninni er sett saman sem veitir þér
innblástur fyrir heimili þitt, eða önnur verkefni sem þú vinnur að.
Elma
Studio er í raun tvískipt, annarsvegar verslun með innanhússmuni,
húsgögn og aðra smávöru fyrir heimili og svo hinsvegar studio þar sem
við erum með málningu, hreinlætis- og blöndunartæki, gólfefni af ýmsum
gerðum, og gardínur.
Ef þú ert hönnuður að velja vörur fyrir
verkefni, einstaklingur að gera upp rými heima hjá þér, villt breyta smá
með nýjum munum eða byggja heilt hús mælum við með því að þú komir og
skoðir úrvalið hjá okkur. Þú getur gert þetta allt á einum stað.
Komdu endilega við, fáðu þér kaffi og með því, staldraðu við í létt spjall og njóttu þess að skoða vörurnar okkar.
Við tökum vel á móti þér!
Íris og Óttar
Merki og samstarfsaðilarnir okkar
Sérefni
Álnabær
Tengi
Harðviðarval
Humdakin
Bloomingville
ByNord
Wikholmform
Skoðaðu fallegu vörurnar okkar
Allar vörurnar okkar eru valdar gaumgæfilega þannig þær séu sem minnst skaðlegar þér og náttúrunni og af góðum gæðum þannig þær geti fylgt þér út lífið.